Framboðslisti fyrir forseta undirfélaga 2026-2027

Ritstjóri/stýra Munins

Hææ elsku bestu samnemendur!

Ég heiti Rósa Signý Guðmundsdóttir, er í 2.X og er að bjóða mig fram í ritstýru Munins fyrir næsta skólaár.

Ég elska MA og ekki síst skólablöðin. Ég man eftir því þegar ég fékk Völvuna 2024 fyrst í hendurnar, hef verið spennt fyrir hverju einasta blaði síðan. Mér finnst alltaf jafn magnað að sjá stemninguna, sköpunargleðina og allt fólkið sem eyðir allri önninni í að gera blaðið sem best fyrir okkur. Og það er af hverju ég gef kost á mér.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að starfið er bæði krefjandi og mikilvægt, en ég er metnaðarfull og skipulögð og legg mig alltaf alla fram í því sem ég tek mér fyrir hendur. Mér finnst líka mikilvægt að hlutir séu bæði vel gerðir og skemmtilegir í leiðinni.

Svo setjið X við Rósu ef þið viljið ritstýru sem er til í að leggja allt í það að gera skólablaðið okkar sem best!

Hæhæ! Ég heiti Steinunn Sóllilja og er í 2.U á náttúrufræðibraut. Ég er að sækja um sem ritstýra Munins þar sem mér finnst fátt skemmtilegra en að skrifa, hanna og föndra. Ég byrjaði að skrifa dagbók nánast um leið og ég lærði að halda á penna, og hef ekki hætt síðan þá. Ég hef verið virk í félagslífi MA, var ritari UmMA núna í ár, í skreytó í fyrsta bekk og í hljómsveit LMA, svo ég hef þó nokkra reynslu af skrifum, samvinnu og útsjónarsemi. Ef ég verð kosinn ritstýra Munins get ég lofað ykkur fjölbreyttu, litríku og metnaðarfullu blaði og ég er tilbúin að leggja mig alla fram í að gera gott blað ennþá betra.
Takk fyrir og vonandi kjósið þið mig! 

Fulltrúi tilvonandi annars bekkjar í Hagsmunaráð

Sæl, ég heiti Alrún Eva Klausen Tulinius og er í 1.AF.

Ég vil verða fulltrúi tilvonandi annars bekkjar í Hagsmunaráði þar sem vellíðan samnemenda minna og að þeirra skoðanir komist á framfæri skiptir mig mjög miklu máli.

Ég hef oft verið hluti af nemendaráðinu í þeim grunnskólum sem ég hef verið í þar sem mín aðaláhersla var að skoðanir og raddir samnemenda minna fengi að heyrast í þeim málum sem tengjast þeim og skólagöngu þeirra. Ég er óhrædd við að láta rödd mína heyrast þegar ég er ósammála um ákveðin efni, sérstaklega þegar það hefur áhrif á fólkið í kringum mig. 

Ég ætla mér að gefa samnemendum mínum rödd ásamt því að gefa þeim þann möguleika á að hafa áhrif á þau mál sem tengjast skólagöngu þeirra. Ég ætla að passa að ábendingar þeirra, skoðanir og hugmyndir komist á framfæri. Ég ætla að taka virkan þátt í því að betrum bæta skólann fyrir alla.

Fulltrúi tilvonandi þriðja bekkjar í Hagsmunaráð

Hæ elsku samnemendur 🩷

Ég heiti Marsibil og er að klára annað árið mitt hér í MA. Ég er í 2T á heilbrigðisbraut og er að bjóða mig fram í hagsmunaráð skólans fyrir næsta skólaár.

Ég hef basically passað uppá hagsmuni alla mína ævi þar sem ég er elst af fjórum systrum og kann sko að þræta þar sem ég á þrjóska tvíburasystur sem segist alltaf hafa rétt fyrir sér. 

Mig langar að vera rödd allra nemenda en sérstaklega þeirra sem hafa skoðanir á hlutunum en þora mögulega ekki að segja þær af ótta við gagnrýni. Mér finnst mikilvægt að allir hafi rödd því við þurfum að segja hlutina upp hátt til að breyta þeim. Ég lowkey lærði það the hard way #MinnstaHerbergiðÍHúsinu 🥰🤩🤪

Ég tel mig góðan kost í þetta verkefni þar sem ég er mjög ábyrg, tillitsöm og vill gera allt gott enn betra, og sérstaklega líf okkar hér í skólanum.

Mér finnst mikilvægt að hagsmunaráðið sé tengiliður milli nemenda og stjórnenda og passa að hlutirnir verða ekki bara segðir heldur gerðir. Einnig langar mér að hjálpa til í að bæta daglega lífið hér í skólanum, svo sem skipulag og álag og að sjálfsögðu staðfesta þessa 5 mín pásu sem er orðin svona freeeekar happa glappa. Ég vil passa að nemendur skólans þekki réttindi sín og auðvitað passa að félagslífið sé áfram svona hellað!! 

Síðustu tvö ár hafa verið frábær og ég vona að við höldum áfram að setja hagsmuni okkar í fyrsta sæti og höldum þessari veislu áfram. Takk kærlega fyrir mig og hendið í X við Marsibil ef þið viljið stemningsmesta og mesta feel good skólaár allra tíma! 🎉

Forseti Umhverfisnefndar

Forseti Leikfélagsins

Hæhæ!  

Ég heiti Hildur Gauja og er í 2.G og ég er að sækja um embætti forseta LMA! Þegar ég var 8 ára skotta kíkti ég á sýninguna Annie sem LMA setti upp og vissi ég þá strax að LMA væri félagið fyrir mig. Þegar ég var lítill busalingur fór ég í leikprufur fyrir Galdrakarlinn í Oz og komst inn! Það ferli er eitt það eftirminnilegasta og skemmtilegasta sem ég hef gert. Eftir að hafa kynnst besta fólki lífs míns kom ekki annað til greina en að sækja um í stjórn fyrir næstkomandi ferli. Ég gerði það og fékk þann heiður að vera varaforseti félagsins. Ég var þó ekki alveg tilbúin að sleppa sviðinu og sótti ég aftur um í leikhóp. Ég komst inn og viti menn, þá bókaði ég aðalhlutverk sýningarinnar! Eftir að hafa setið í stjórn félagsins ásamt því að sinna aðalhlutverki og vera teymisstýra búningateymis myndi ég klárlega segja að þið finnið ekki manneskju sem gerir sér jafn mikla grein fyrir ábyrgðinni og gleðinni! Fyrir sturlaðasta ferli LMA hingað til mæli ég með því að setja X- við Hildi Gauju!

Forseti Málfundarfélagsins

Hææ kæru MA-ingar!!

Ég heitir Kristín Emma og er í 2.F. Ég gef kost af mér sem forseti Málfó. Eins og  einhver ykkar hafið eflaust tekið eftir þá hef ég verið í málfó stjórn síðan að ég var busi og hef tekið þátt í að gera félagslíf MA ennþá betra. Ég hef mikla reynslu og ég er geðveikt spennt fyrir næsta skólaári og að hafa félagslífið ennþá betra!


Ef að þið viljið sjá BANGER Gettu Betur keppnir, MORFÍs keppnir og bragabikar þá skulið þið ekki hika við að kjósa mig sem forseta Málfundafélags Hugins!! 🥰

Forseti dansfélagsins

Hææ sætu bestu! Ég heiti Kolfinna Stefánsdóttir og er í 2. G, og ég er að bjóða mig fram í forseta PríMA. Ég sæki um að vera forseti PríMA því ég elska ekkert meira en að dansa og það er fátt betra en að vera í sal fullum af peppuðu fólki að dansa saman. Ég var varaforseti PríMA á þessu skólaári og einnig listrænn dansstjórnandi í LMA, og ég bæði æfi og þjálfa dans … þannig já, dans er lowkey my life. Á næsta skólaári langar mig að koma með skemmtilegt og frumlegt þema fyrir dansana okkar á árshátíðinni og halda áfram að byggja upp alvöru dans stemningu í PríMA. Þó er mitt helsta markmið að fá sem flesta með! Því PríMA er fyrir alla og ég vil að allir fái að láta ljós sitt skína, því væri ég afar þakklát ef þið myndu kjósa mig!

Forseti íþróttafélagsins

Hæ ég heiti Magnús oftast kallaður Gnúsi. Ég er að sækja um sem forseti íþróttafélagsins. Ég er í 1.V og er núverandi ÍMA-busi. Ég æfi handbolta með KA og hef verið að þjálfa yngri flokka. Ég hef brennandi áhuga á öllum íþróttum. Mér fannst svo ótrúlega gaman í ÍMA og ég gat ekki sleppt því að sækja um og halda áfram. Mig langar að halda áfram með þessi frábæru íþróttamót auk þess að vekja aftur upp gamlar hefðir sem hurfu í covid, svo sem íþróttadag MA. Endilega kjósið mig.  

Forseti TóMA

Hæhæ! Ég heiti Íris Ísafold Sigurbjartsdóttir og ég er að bjóða mig fram í forseta TóMA fyrir næstkomandi skólaár. Ég er í 2.IL á tónlistarbraut. Ég var forseti TóMA á þessu skólaári og það var það skemmtilegasta sem ég hef einhvern tímann gert. 

Sem busi fékk ég tækifæri frá þáverandi TóMA stjórn til að taka þátt í fullt af viðburðum eins og viðarstauk og söngkeppninni sem hjálpaði mér að komast á þann stað sem ég er núna. Mér finnst það mikilvægt að gefa fólki tækifæri til að taka þátt og sérstaklega fyrir tónlistarfólkið okkar sem er hérna í MA til að koma og sýna hvað það getur. Þetta er eitthvað sem mig langar að halda áfram að gera og leggja mikla áherslu á.

En af hverju ættuð þið að kjósa mig sem TóMA forseta annað árið í röð? Það er einfaldlega vegna þess að ég hef mikla reynslu í þessu starfi og veit núna að við getum gert enn meira á næsta ári. 

Takk fyrir og setjið x við Írisi Ísafold í forseta TóMA:)

Forseti femínistafélagsins

Ekkert nema þakklæti til FemMa fyrir að hafa mótað mig, þroskað mig og kennt mér, í gegnum allt það frábæra fólk sem ég hef kynnst þar síðustu tvö árin. Að vera busi í femínistafélagi fær stundum fólk til að dæma mig eða halda að maður sé öfgafullur, en raunveruleikinn er allt annar. Við þurfum jafnrétti. Við þurfum að standa saman, óháð kyni, húðlit, menningu eða uppruna. Við erum öll af sama toga. Það væri mér mikill heiður að fá að vera forseti FemMa og halda félaginu lifandi fyrir komandi nemendur.

Forseti fastanefndar

Hæææ, ég heiti Ásthildur, er i 2IL og er að bjóða mig fram sem formann fastanefndar. Ég hef verið i fastanefnd síðan ég var busi og vill endilega halda því áfram en nú sem formaður svo endilega setjið x-við Ásthildi !!!

Forseti AmMA

Ég heiti Máni Franz Jóhannsson og er í 1. U. Á þessu ári hef ég verið virkur þátttakandi í AmMA þar sem ég hef fengið að skrifa sketcha, leika í þeim, klippa myndbönd, halda biblíulestur og vöfflukaffi og skít tapað í bragabikar. Sú reynsla hefur verið gríðarlega skemmtileg og hefur þetta vakið áhuga minn á að gera meira með félagið og gera það ennþá betur og því langar mig að bjóða mig fram sem forseta.

Mig langar að leggja áherslu á góða stemningu, geggjuð lög, meira efni og fjölbreyttari myndbönd. Ég vil ekki aðeins halda áfram að gera skemmtileg myndbönd, heldur einnig bæta við aukaefni, fleiri lögum og fleiri verkefnum sem mun setja AmMA á nýtt level.

Markmið mitt er að gera AmMA að enn virkari og skemmtilegri félagi þar sem metnaðurinn verður á 100% og stemmingin á 110%.

Svo ef þið viljið geggjuð myndbönd á næstkomandi ári, setjum X við Mána.

Kjósið stemningu, kjósið Franzarann.

Forseti AsMA

Ég heiti Guðrún og er í 2.F og er að sækja um í forseta asma því ég er búin að vera í asma i tvö ár og eitt af þeim í Stjórn þannig ég þekki þetta soldið og finnst þetta MJÖG gaman!🩷

Forseti DRaMA

Hæhæ, ég heiti Karolina Maria og er í 2X. 

Ég er að bjóða mig fram í forseta draMA fyrir næstkomandi skólaár. Ég hef nú verið meðlimur í félaginu í eitt ár sem hefur verið ótrúlega skemmtileg og lærdómsrík upplifun, og veit nú aðeins hvernig þetta virkar. Ég held að þetta starf henti mér mjög vel þar sem ég hef bæði gaman af því að skipuleggja og halda utan um hluti. Mér finnst mjög gaman að vinna með skemmtilegu fólki og gera æðiiii hluti saman. Ég er ábyrg, skipulögð og finnst mjög mikilvægt að allir fái að njóta sín og hafi mjööög gamannn ☺☺☺ <3

Ég heiti Hafrún Linda Guðmundsdóttir og er í 1.V. 

 Ég er að bjóða mig fram sem forseti DraMA. Ég tel mig vera rétta manneskjan í þetta því ég þekki starfið og félagið mjög vel. Þar sem systir mín var í félaginu kynntist ég DraMA fyrir löngu síðan og tók þátt í videoupptökum og lagagerð fyrir félagið áður en ég kom sjálf í MA. Þá sem busi vissi ég að þetta væri eitthvað sem ég vildi vera partur af og í framhaldið af því sækja um í forsetan. Ég vill passa félagið, hafa traustan og skemmtilegan félagsskap þar sem allir fá að njóta sín og gera minningar for life! Að lokum ætla ég, Hafrún ætla kynna nýjum æðislegum einstaklingum fyrir the iconic “DraMA lifestyle”. 

Lengi lifi DraMA!

Forseti MdMA

Eysteinn Kári 2G 

Yo ákvað að bjóða mig fram í mdMA. Vaknaði og ákvað það bara, einfaldlega staðan.

Forseti Stemma

Ég heiti Sigurborg Kaja Arnarsdóttir og ég er í 2.G. Mér langar að að bjóða mig fram sem forseti í StemMA því mér langar að gera skemmtileg myndbönd og gera félagslífið skemmtilegra og gera það með fjölbreittum og skemmtilegum stelpum sem langar að vera með og taka þátt. Mér langar að allir geta verið með í stemMa og geta komið með sýnar hugmyndir til að gera þetta geðveikt skemmtilegt. 

Forseti SviMA

Sigurpáll Steinar (Palli) 

2.H

Mér langar að sækja um í forseta SviMA því einhver þarf að gera það og bjarga þessu. Ég ætla allavegana að bara gera góð video og good vibes ngl

Forseti SauMA

Hæhæ! Ég heiti Amelía í 2. IL og ég er að bjóða mig fram í forseta SauMA. Ég held að ég væri frábær í þetta starf þar sem síðast liðið skólaár var ég í stjórn SauMA og sinnti ég því hlutverki af miklum metnaði, ást og umhyggju😊. Ég hef töluverða reynslu í söng og hef alla tíð verið í söngnámi og svo hefur ótal og ég virkilega meina ÓTAL tímum af lífi mínu verið eitt í sturtusöng sem að hefur komið mér ansi langt í lífinu fram að þessu og mæli ég alfarið með því að allir prófi að spreyta sig í honum í næstu sturtuferð.😇

Ef þið viljið að næsta skólaár verði sturlað og ef þið viljið sjá og taka þátt í GEITAÐASTA árshátíðaratriði í sögu Menntaskólans á Akureyri mæli ég alfarið og innilega með því að setja einn sætann lítinn kross við Amelíu í SauMA forseta!🫰

Forseti PrideMA

Hæhæ, ég heiti Máni Freyr og er í 3.L (ég er semsagt í sveigjanlegum námslokum). Ég er að sækja um sem forseti prideMa þar sem ég er núverandi forseti og vil gjarnan halda því áfram. Hinsegin málefni skipta mig miklu máli og mér finnst mikilvægt að það sé öruggt rými til staðar fyrir hinsegin ungmenni. Ég hef verið í þessari stjórn síðan að ég var busi og það myndi gleðja mig ef þú gætir kosið mig þannig að ég gæti haldið áfram :)

Forseti Sjoppuráðs

Góðan og blessaðan daginn. Ég heiti Hjalti Jóhann, er í 2.X og er að bjóða mig fram í forseta sjoppuráðs. Hví ættir þú að kjósa mig? Í grunnskóla stofnaði ég og rak sjoppu í félagsmiðstöðinni heima í Stykkishólmi.  Ég tel mig vera ábyrgan og kunna að höndla pening og er áhugasamur um starfið.


Ef ég verð kosin forseti mun ég gera mitt besta til að reka sjoppuna með stæl og skipulagi og passa að það sé alltaf til nóg af þínum uppáhaldsdrykkjum og snarli. Einnig vil ég reyna að pumpa lífi í sjoppuna með tilboðum, skreytingum og fleiru, sem myndi allt hafa þau áhrif að gera sjoppuna að betri stað fyrir þig að versla.


Takk fyrir og kjósið mig!

Heil og sæl kæru MA-ingar, 

Valgerður Telma Sól Einarsdóttir heiti ég og er í 2.T á heilbrigðisbraut. Ég er að bjóða mig fram sem forseta sjoppuráðs skólaárið 2026–2027 

Ég hef ákveðið að bjóða mig fram því allt gott má gera betra og mér finnst sjoppan hafa fullt af möguleikum til að verða enn betri. 

Ef ég verð kosin vil ég leggja áherslu á að sjoppan sé opnuð á réttum tíma og að vaktir gangi vel. Ég vill bæta úrvalið (já, fleiri ostaslaufur OG alltaf nóg af orkudrykkjum), reyna að lækka verð þar sem það er hægt og auka samstarf við fyrirtæki í bænum. Einnig finnst mér mikilvægt að opna þá möguleika að taka við fleiri greiðslumöguleikum, eins og seðlum. 

Ég er þrjósk (á góðan hátt), metnaðarfull, ákveðin og veit hvað ég vil, en á sama tíma jákvæð, samvinnufús og með húmor. Ég mun leggja mig fram við að gera sjoppuna betri fyrir alla nemendur.  

Gjaldkeri sjóppuráðs

Hæhæ, kæru samnemendur,
ég heiti Ísold Vera og er í 2.X á raungreina- og tæknibraut og ég er að bjóða mig fram sem gjaldkera sjoppuráðs skólaárið 2026–2027.

Ég hef alltaf haft gaman af tölum og stærðfræði og tel mig því passa vel í þetta hlutverk. Ég er skipulögð, ábyrg og á auðvelt með að halda utan um hluti og sjá til þess að allt stemmi.

Ég þekki líka sjoppuna vel og hef verið fastagestur þar síðustu tvö ár og líklega keypt fleiri orkudrykki og ostaslaufur en nokkur ætti…og veit ég því hversu mikilvægt það er að rétti orkudrykkurinn er til í frímó eftir erfiðan tíma á mánudags morgni.

Ég mun leggja mig fram við að gera sjoppuna enn betri, meðal annars með fleiri góðum dílum og með því að hlusta á hugmyndir ykkar um hvað mætti bæta. Setjið því X viðÍsold Veru í gjaldkera sjoppuráðs ef þið viljið metnaðarfulla og ábyrga manneskju sem heldur vel utan um sjoppuna ykkar.

Innkaupastýra/stjóri sjoppuráðs

Hæææ, kæru MA-ingar! Ég heiti Baldvin Barri Guðmundsson, ég er í 2.X og ég vinn í Bónus. Ég er að bjóða mig fram í innkaupastjóra sjoppuráðs vegna þess að mér finnst þetta spennandi starf sem þarfnast skipulagðs og metnaðarfulls einstaklings. Ég tel mig hafa þessa einkennileika og þar með vera fullkominn í þetta starf.

Stefnan mín sem innkaupastjóri væri að heyra í sem flestum um hvers konar breytingar fólk vill fá í sjoppuna, hvort sem það er að fá fjölbreyttara úrval af orkudrykkjum, meira bakkelsi eða hvað sem er. Mig langar líka að gera sjoppuna meira spennandi fyrir ykkur MA-inga með því að skreyta hana meira og koma með ný og spennandi mánaðarleg tilboð sem spara ykkur krónur.

Takk fyrir og kjósið mig!

Forseti Þriðjabekkjaráðs

Ég heiti Rósa María Hensley Stefánsdóttir og er 2.F á Félagsbraut.

Mér langar að sækja um af því að ég hef áhuga á að skipuleggja útskriftarferðina og vinna í því að fjármagna ferðina. Í Þessu verkefni ætla ég að skipuleggja hvert verkefni fyrir sig og hafa eyru opin fyrir hugmyndum hjá samnemendum.

Mér finnst ég vera flott í þetta starf því ég er skipulögð og finnst gaman að vinna verkefni í hóp.

Og ég vil svo sannarlega hafa STURLAÐA útskriftaferð!!

Gjaldkeri þriðjabekkjaráðs

Hæ hæ, ég heiti Gígja Lillý og ég er í 2.T 

Ég er að sækja um sem gjaldkeri í þriðjabekkjaráðinu, ekki bara af því að mér finnst gaman að telja peninga (og ég er ekki að djóka þegar ég segi að ég hef talið sparibaukaklinkið mitt til gamans), en nei ég er að sækja um gjaldkera af því að ég vil hjálpa okkur að eyða skynsamlega… og kannski líka smá skemmtilega.  

Ég elska að plana ferðir og myndi telja mig vera góð í því sérstaklega því það kemur frá ættinni að plana, sko við erum að tala um það að þegar fjölskyldan mín fer til útlanda fáum við bækling sem við höfum gert og planað sjálf. Ég ætla nú samt alls ekki að láta ykkur fá bækling en bara svona til að sýna að ég hef það sem þarf til að plana og skipuleggja. Ég elska líka að halda um eitthvað, sérstaklega þegar það kemur að því hvernig við erum að eyða. Hér kemur annað stutt dæmi, þegar ég kom heim frá helgi í Reykjavík það fyrsta sem ég gerði var að kíkja í bankann minn og telja og reikna hversu mikið ég eyddi. Ég myndi telja mig frekar góð á Excel og finnst svo ótrúlega gaman að taka á við áskorun sérstaklega þegar það kom að því að reikna. Mér finnst ótrúlega gaman í stærðfræði (nema skilgreiningar, en samt sem betur fer er ég búin með það).  

Mér finnst líka ótrúlega gaman að hanna hluti og elska canva. Ég hef hannað voru fyrir orkudrykkja fyrirtæki fyrir ungir frumkvöðlar og myndi segja að ég hef smá reynslu í hönnun. 

Ég vill passa uppá að útskriftarferðin okkar í 3 bekk verðri eitthvað sem enginn mun gleyma og líka að öllum líði vel og finni eitthvað fyrir sig og ég mun reyna mitt allra besta að tryggja að við fáum sem mest fyrir peninginn hvort sem það er í útskriftarferðinni eða í geggjuðum skólapeysum sem við getum actually verið stolt af. 

Kjósið Gígju í gjaldkera takk fyrir mig  

Hææ! Ég heiti Lilja Björk og er í       2.U. Ég býð mig fram til gjaldkera 3.bekkjarráðs skólaárið 2026-2027. Ég býð mig fram vegna þess að ég   

 hef áhuga á starfsemi ráðsins og 

langar að vera hluti af því sem ráðið gerir, eins og að skipuleggja fjáraflanir, útskriftarferð, fatasölu o.fl. Ég er skipulögð, metnaðarfull og mun gera það sem er nemendum í 

hag. Endilega kjósið mig ef þið viljið  góða umsjón yfir peningunum ykkar/okkar og hellaða útskriftarferð  

2027!!

Ritari þriðjabekkjaráðs

Hæhæ, ég heiti Rakel Hjaltadóttir og er í 2.G. Ég býð mig fram sem ritari 3. bekkjaráðs vegna þess að ég tel mig vera góður kostur skipuleggjanda fyrir útskriftarferðina. Einnig vil ég að öllum líði sem best þegar kemur að ferðinni og mun ég því leggja mig alla fram til þess að það gerist. Ég vil gera þessa útskifrarferð bestu ferð lífs ykkar og er ekkert eðlilega peppuð í það.  Endilega setjið x við Rakel sem ritara 3. Bekkjaráðar <3

Hæhææ, ég heiti Emma Karólína Snæbjarnardóttir og er í 2.X. Ég sem dýrka félagslífið hér í MA langar virkilega að vera partur af skipulagningu á útskriftarferðinni og öllu því sem fylgir því að vera ritari þriðjarbekkjaráðs: Þar sem ég hef nú þegar ótrúlega gaman af því að skipuleggja utanlandsferðir, sérstaklega on a budget, og mun heldur betur sjá til þess að enginn verður blankur og allir munu hafa geeeðveikt gaman!!

Hæææ! Ég heiti Miruna-Amalia og er í 2.IL á félagsbraut og er að bjóða mig fram í ritara þriðjabekkjaráðs.

Ég hef verið virk í FemMa í tvö ár og þar hef ég tekið þátt í skipulagningu og fjáröflunum, meðal annars stórum gjafaleik þar sem yfir 500 manns tóku þátt. Það kenndi mér mikið um skipulag, ábyrgð og að klára verkefni frá A til Ö.

Þar sem ég elska ekkert meira en að skipuleggja og gera hluti 10/10 þannig að allt sé ekki bara gert, heldur gert vel ;) Mig langar einnig að sjá um fjáröflunina þannig að við verðum í góðum málum og getum gert útskriftarferðina eins eftirminnaleg og mögulegt er. Ég myndi líka leggja metnað í MA-fötin því þau eiga að vera eitthvað sem við erum stolt af og viljum nota áfram, eins og í ár. Takk fyrir ♡

Samskiptastýra/stjóri Þriðjabekkjaráðs

INGUNN MARÍN BERGLAND INGVARSDÓTTIR 2.F 

Hæhæ, ég heiti Ingunn Marín Bergland Ingvarsdóttir og er í 2F. Ég er að gefa kost á mér sem samskiptastýra í þriðjabekkjarráði. Ég tel mig vera góð í þetta starf vegna þess að ég  er frábær í samskiptum og er, þó ég segi sjálf frá, mjög mikil stemmingskona. Ég elskaaaa líka ekkert annað en að fara í eina good shit útlandaferð og er orðin snillingur að plana ferðir. Því væri það minn sannur heiður að fá að skipulegga útskrifaferðina okkar og ég lofa góðum dílum og stemmingu!! Þess vegna segi ég þér að setja X við mig ef þið viljið banger útskriftaferð og góðar skólapeysur á næsta skólaári!!  

Peace out<3

Next
Next

úrslit Gildra huginskosninga