Frambjóðendur huginsstjórnar 2026-2027

Emil Ragnar Reykjalín Ólafsson

Inspector/Inspectrix scholae / Forseti

Hæ öll! Ég heiti Emil Ragnar og er í 2.H á félagsfræðibraut. Það er hægt að lýsa mér á marga vegu, en eitt af fyrstu orðum sem ég myndi nota er að ég er MA-ingur. Ég hef elskað MA í mörg ár, alveg síðan að foreldrar mínir og eldri bróðir byrjuðu að segja mér sögur af öllu fjörinu og klandrinu sem maður á til að lenda í. Þegar ég gekk í skólann sem busi með nánast enga grunnskólavini mér við hlið var ég alveg dáleiddur af öllum æðislegu hefðunum sem eru í skólanum, eins og Hesta Jóa, söngsölum, árshátíðinni, gleðidögum og fleira sem er núna orðið daglegt brauð. Jafnvel óformlega bannið við að labba yfir sviðið fannst mér skemmtilegt, en ég er kannski einn í því.

Fólkið sem ég hef kynnst í MA er í alvörunni eitt af því skemmtilegasta, gáfaðasta og mest skapandi fólk sem ég hef nokkurn tímann verið svo heppinn að kynnast, og ég veit að skólinn minn mun velja aðeins þau bestu í stjórn Hugins. Það væri því ótrúlegur heiður að fá að vinna með næstu Huginsstjórn í forsetastöðu. Ég hef voðalega gaman af því að kynnast og vinna með nýju fólki og legg alltaf mikinn metnað í þau verkefni sem eru mér nær að hjarta, þar sérstaklega með talið félagslífið í skólanum.

Í rauninni vil ég bara reyna mitt allra besta og að við höfum öll eins gaman af komandi skólaári og við mögulega getum :)

Hasta la Victoria MA!

Gunnar Óli Gunnarsson

 

Halló ég heiti Gunnar Óli og er í 2.T og er að sækja um embætti forseta Hugins. Ástæðan er einföld: mér finnst félagslíf skólans geggjað og mig langar að taka enn stærri þátt í því að gera það enn betra. Frá því að ég fékk meiri innsýn í verkefni Huginsstjórnar núna á öðru ári sé ég hversu mikið hún gerir fyrir skólann og hvað það getur verið bæði skemmtilegt og gefandi að taka þátt. Ég hef sjálfur verið virkur í félagslífinu, setið í stjórn AmMA, Málfó og Skemmtó og komið að skipulagningu viðburða. Sérstaklega í Skemmtó fékk ég að upplifa hversu gefandi það er að skipuleggja viðburði sem nemendur njóta, og vinna með hópi sem er bæði metnaðarfullur og skemmtilegur.

Sem forseti Hugins vil ég halda áfram að efla félagslífið, leggja áherslu á að efla samvinnu undirfélaga og skapa jákvætt og hvetjandi umhverfi fyrir allt félagslíf skólans. Ég er tilbúinn að leggja mig fram og taka ábyrgð á því að halda áfram að gera félagslífið skemmtilegt, því það er það sem gerir MA að skólanum sem hann er svo setjið X-við Gunnar.

Exuberans Inspector/Inspectrix / Varaformaður

Íris Alma Kristjánsdóttir

Ég er að sækja um af því að ég veit að ég mun njóta mín mjög vel innan Huginsstjórnar ef ég skildi komast inn. Ég hef verið í stjórnum áður innan skólans og tel mig vera mjög góð í að sinna ýmis verkefnum og störfum og það er FULLKOMIÐ fyrir manneskju sem gefur kost á sér í varaforsetann því að þetta er staða í stjórn sem þarf að taka að sér mörg ólík verkefni í hendurnar. 

Ég vill vera til staðar fyrir MA-inga og passa að öllum líði vel og fái að koma skoðunum sínum og hugsunum á framfæri. 

Aðal atriðið er samt það að ég er MIKIL stemningsmanneskja og passa alltaf að fólk sé í góðu skapi og ég mun svo sannarlega ekki hætta að vera það ef ég skyldi komast inn í stjórn! Ég elska góð spjöll og góð teiti😋✌️

Quaestor scholaris / Gjaldkeri

Ásdís Olsen Eðvaldsdóttir

Heyyy fellow MA-ingur, ég heiti Ásdís Olsen og ég er í 2.U á hinni einu og sönnu náttúrufræðibraut! Og er ég að bjóða mig fram í gjaldkerann í Huginsstjórn skólaárið 2026-27😏. Nei þetta er búið og ekkert fyndið grín lengur, sorry með mig heh.

En ég ákvað að gefa kost á mér í gjaldkera Hugins vegna þess að ég vildi virkilega mikið gefa loksins eitthvað til baka til skólans sem hefur gefið mér svo margt, og ég man þegar ég sat við borð í höllinni i skreytó-árshátiðarvikunni, ískalt, að búa til einhverja origami fugla að ég hugsaði til gjaldkerans hvað hann væri með mikið hlutverk að ég hefði sko alveg séð mig fyrir mér þar, þar sem ég hef safnað mér allskonar reynslu sem hagnýtist gjaldkeranum héðan og þaðan, þannig ég hvet þig að setja x- við Ásdísi í gjaldkerann😉🫰

Isabella Agnethe Tarnow

Komið sæl, ég heiti Isabella Agnethe Tarnow ég er á heilbrigðisbraut í 2.T og býð mig fram sem gjaldkera Hugins. MA hefur gefið mér ómetanlegan stuðning og félagslífið hjálpað mér að blómstra. Nú vil ég gefa til baka og skapa sömu tækifæri fyrir aðra nemendur. Reynslan mín úr stjórn ÍMA og að taka þátt í LMA hefur kennt mér skipulag, ábyrgð og samvinnu. Ég hef gaman af tölum og fjármálum og vinn verkefni af samviskusemi. Setjið X við Isabellu til að tryggja fleiri stærri og betri viðburði fyrir skólann okkar með góðu skipulagi fjármála á næst komandi ári. Það væri heiður að fá að taka þátt í að halda þessu frábæra félagslífi áfram. Kjósið mig og ég lofa ég skal gera allt til að gera félagslífið okkar allra sem best.

Scriba scholaris / Ritari

Heiðdís Pála Áskelsdóttir

Halló hæ! Ég heiti Heiðdís Pála og er í 2.IL á félagsfræðibraut, ég er frá Sauðárkróki og ákvað að koma í MA og sé sko alllls ekki eftir því! Ég er að sækja um sem ritari Hugins árið 2026-2027😁

Ég er algjör theatre kid og er búin að vera í LMA bæði árin mín í skólanum og var í stjórn í 2 bekk. Svo er ég mikil stemmingskona  og er búin að vera í StemMA bæði árin mín líka. Ég elska þennan skóla og félagslífið hér og langar að hafa það sem best og sem skemmtilegast. Mig langar mjög að fá reynsluna sem fylgir ritara starfinu og að skipuleggja árshátíðina, ég væri mjög þakklát fyrir ykkar atkvæði þar sem ég held að ég myndi negla þetta starf og standa mig voða vel😊

X-við HEIÐDÍSIIIIIIIIII

Erus gaudium / Skemmtanastjóri/stýra

Sigríður Birna Ólafsdóttir

Hææ ég heiti Sigríður Birna Ólafsdóttir, ég er í 2.IL á félagsgreinabraut og er hér með að bjóða mig fram í starf Skemmtunarstýru Hugins 2026-2027! Ég er algjört félagsdýr og lifi fyrir allri gleðinni sem fylgir því að vera í MA, ég vil sjá til þess að farsældin haldi áfram að heilla MA-inga næsta árið því það er partur af því sem lífið snýst um, að hafa gaman! Sem busi var mér bent á Skemmtó, heilt félag sem sér um alskyns flotta og skemmtilega viðburði svo ég þorði ekki annað en að sækja um og viti menn! Nú hef ég fengið að upplifa tvö stórkostleg skólaár í því félagi og ég tel mig reynslunni ríkari. Það var fátt annað í stöðunni fyrir mig en að láta vaða og sækja um í Skemmtunastýruna og hér erum við nú. Takk fyrir allt og vonandi hef ég freistað ykkur öll til þess að haka við mitt nafn í kosningunni! Peace<3

Collega scholae / Meðstjórnandi

Jóhann Valur Björnsson

Hæ, kæri samnemandi! Ég heiti Jóhann Valur Björnsson og er í 2. X en fyrst að ég er með athyglina þína langar mig aðeins að segja þér hversu verðmæt undirfélög skólans eru fyrir mér. 

    Þegar ég mun líta aftur á MA skólagönguna mína mun ég ekki muna eftir náminu, heldur verður það LMA ferlið þar sem ég fékk ótrúlega tækifærið að leika hrokafullan og leiðinlegan mann í þrjá mánuði sem breytti lífinu mínu. AmMA myndböndin þar sem ég lék oft óþægileg hlutverk fyrir framan allan skólann og TóMA viðburðirnir þar sem ég fékk að gerast hljóðmaður fyrir t.d. Viðarstauk og Jólatónleikana.

    Þetta er það sem ég mun muna eftir alla mína ævi og mig langar að næstkomandi nemendur upplifi það sama og ég. Að verða tengiliður undirfélagana fyrir Huginn myndi vera algjör heiður og ég myndi sinna þeirri vinnu af ástríðu.

Takk fyrir og kjósið mig!

Jón Pétur Briem Gíslason

Hæhæ! Ég heiti Nonni Briem (Jón Pétur Briem Gíslason), ég er í 2.H og er að bjóða mig fram sem meðstjórnanda. Flestir geta eflaust verið sammála um að skólinn okkar er algjörlega frábær þegar að kemur að félagslífi og hefðum, og eru mörg okkar hér út af því. Mig langar til að taka það sem er nú þegar gott, og gera það ennþá betra. Ég hef nokkra ára reynslu í nemendafélagi, ég hef góð tengsl í ýmis undirfélög, er mjög metnaðarfullur og hef gríðarlega ást fyrir þessum skóla. Það er samt ekki alltof langt síðan ég tók að vera virkari í félagslífinu. Ég kom hingað án þess að þekkja marga og veit hvernig það er að komast ekki strax í hópinn. Það gefur mér mikla þekkingu varðandi hvað hægt er að gera í þeim breytingum sem ég vil verða fyrir. Mig langar að opna félagslífið meira og gera auðveldara fyrir fleiri að komast inn í það, t.d. 1. bekkinga og aðkomufólk. Svo vil ég að 2. bekkingar fái að njóta lokaársins að fullu eins vel og hægt er, og að 3. bekkur geti yfirgefið skólann vitandi að það sem þau hafa skilið eftir og gert verði í góðum höndum. Ég vil passa upp á hefðirnar okkar og mögulega endurvekja einhverjar gamlar, því að það er svo stór hluti af því sem gerir skólann einstakan. Skólinn er ekkert annað en við sem erum í honum og það sem við gerum fyrir hann. Ég tel mig vera rétta manninn í hlutverkið og hafa það sem þarf til að bæta skólann og vona innilega að ég fái það draumatækifæri að koma því í verk. Setjum X við Nonna!

Hasta la victoria – MA!!!

Erus pactum/ Markaðsstjóri/stýra

Adrían Máni Ingvarsson

Ég heiti Adrían Máni Ingvarsson og er í 2F. Ég er að bjóða mér fram í markaðsteymi Hugins vegna þess að ég hef áhuga á að taka þátt, og hafa áhrif á hvað er gert fyrir skólan. 

Ég er hugmyndaríkur og alltaf jákvæður, og verulega flinkur á Canva. Mig langar að komast í Huginn því ég veit að ég get gert margt gott og haldið upp á mikla stemningu fyrir nemendur MA. 

 Hef alltaf átt áhuga á félögum skólans þannig afhverju ekki bara fokkit og sækja um.

Eydís Rósa Jónsdóttir

Halló Halló kæru samnemendur, ég heiti Eydís Rósa og er í 2.F á félagsfræðibraut. Ég er að bjóða mig fram í markaðsstýru Hugins 2026-2027. Ég hef brennandi áhuga á MA og félagslífi skólans sem við erum svo afskaplega heppin með og langar mér virkilega að taka enn meiri þátt í því. Ég elska að prófa nýja hluti og vera partur af góðum hópi þar sem fólk vinnur saman og hefur gaman! 

Ég hef nokkuð góða reynslu af hópavinnu þar sem ég tók þátt í PriMA árshátíðar dansinum þegar ég var lítill busi og svo var ég einnig í danshóp LMA á öðru ári. Þar lærði ég MIKIÐ um samvinnu og að vinna með mismunandi fólki. Ég held að það hjálpi mikið í svona starfi þar sem samvinna skiptir miklu máli.

Ég vona innilega að þið treystið mér fyrir þessu starfi og að ég fái ykkar atkvæði, ég yrði sko ÆVINLEGA þakklát. Peace and love ☆

X - Eydís Rósu!

Katrín Lóa Ingadóttir

Heyy there party people!! Ég heiti Katrín Lóa og er í 2.T á heilbrigðisbraut og ég býð mig fram sem markaðsstýra Hugins fyrir skólaárið 26/7🤌. Fyrsta menntaskóla árið mitt tók ég þó í MR en þar sem ég ólst upp á Akureyri hef ég aldrei fengið eins mikið FOMO á að sjá allt sem MA-ingarnir voru að bralla. Það þurfti ekki meira til en það og ég flúði 💃 borg óttans til að sjá hvað MA is all about og sé sko ALLS ekki eftir neinu. Þetta eina ár hefur sýnt mér hversu einstakt félagslífið er og eftir að hafa tekið þátt í LMA ferlinu fann ég enn sterkari áhuga á að vera virkur partur af því að MA heilli alla eins og hann náði sko að heilla mig. 

Ég hef mikinn áhuga á samfélagsmiðlum og hef meðal annars verið að búa til efni fyrir Huppu á TikTok og at this point orðin þekkt sem huppukrúttið. Það að vera að stýra samfélagsmiðlum Huppu hefur gefið mér dýrmæta reynslu í að ná til fólks og vekja athygli á mikilvægum atburðum líkt og markaðsstýra þyrfti að kunna.

Sem markaðsstýra vil ég tryggja að viðburðir séu auglýstir skýrt og tímanlega, að allir viti hvað er í gangi og að sem flestir taki þátt. Ég vil leggja mig 100% fram, bæði í að efla sýnileika félagslífsins og vinna að því að sækja styrki svo hægt sé að gera næsta skólaár sem skemmtilegast (er nú líka hella hress týpa ef ég segi sjálf frá😉). 

Við munum á endanum gleyma öllum prófunum, en við munum alltaf muna eftir félagslífinu og öllu sem fylgir því #MArocks🤤. Setjið X við Katrínu Lóu.

Nanna Líf Gautadóttir Presburg

Hæ, ég heiti Nanna Líf Presburg og er í 2. X á raungreina og tæknibraut. Ég er að sækja um sem markaðsstýra og ef ég verð kosin er ég mjög spennt að leggja mitt af mörkum í þetta spennandi verkefni. Ég tel mig hafa góða hæfileika til að kynna viðburði og vekja athygli á þeim, ásamt því að koma nýjum hugmyndum á framfæri. Ég er skipulögð, metnaðarfull og á auðvelt með að vinna með öðrum, sem ég tel vera mikilvægt í þessu hlutverki. Mér finnst þetta ferli bæði skemmtilegt, skapandi og  áhugavert og ég er full tilhlökkunar að taka þátt.

Presidium discipulus / Forseti hagsmunaráðs

Edda Júlíana Jóhannsdóttir

Hæ hæ, ég heiti Edda Júlíana Jóhannsdóttir og ég er að bjóða mig fram í forseta hagsmunaráðs. Ég er í 2.U á nátturfræðibraut en er reyndar að skipta um bekk þannig ég er að fara vera í 3.T á heilbrigðisbraut á næstkomandi skólaári. Ég hef tekið virkan þátt í félagslífinu eins og að taka þátt við að setja upp árshátíð MA, vera í búningarteymi í LMA og einnig er ég í stjórn Málfundarfélagsins. Sú reynsla hefur kennt mér að vinna með ólíkum hópum, skipuleggja viðburði og hlusta á hugmyndir annarra.

Mér langar að sækja um í forseta hagsmunaráðs vegna þess að ég hef mikinn áhuga á að hafa áhrif og taka þátt í að bæta samfélagið í kringum mig. Ég tel mikilvægt að rödd ungs fólks heyrist og að við fáum tækifæri til að koma hugmyndum okkar og skoðunum á framfæri. Ég er tilbúin að leggja mig fram, hlusta á aðra og vinna að jákvæðum breytingum sem gagnast skólanum.

Rósa Signý Guðmundsdóttir

Hææ elsku bestu samnemendur! Ég heiti Rósa Signý Guðmundsdóttir, er í 2.X og gef kost á mér í forseta hagsmunaráðs á næsta skólaári.

Þessi tvö ár í MA hafa verið bestu ár lífs míns hingað til og mér finnst mikilvægt að öllum líði vel í skólanum og að rödd nemenda fái að heyrast. Ég vil vera manneskjan sem þið getið leitað til með hugmyndir, áhyggjur eða það sem mætti fara betur.

Ég hef mikinn metnað fyrir því að gera gott skólasamfélag enn betra og vinna að hagsmunum allra nemenda.

Ég veit að starfið krefst ábyrgðar, trausts og mikillar vinnu og ég er tilbúin að leggja mig alla fram til að gera skólaárið sem best fyrir okkur öll.

Svo setjið X við Rósu ef þið viljið trausta og góða manneskju í forseta hagsmunaráðs!🩷

Previous
Previous

Úrslit Huginskosninga 2026-2027

Next
Next

Úrslit kosninga 2013-2025