top of page
Search

YFIRLÝSING VEGNA SÖNGKEPPNI FRAMHALDSSKÓLANNA

Undanfarin ár hafa orðið miklar breytingar á Söngkeppni framhaldsskólanna. Í ár hafa orðið enn frekari breytingar sem

fela í sér að einungis 12 skólar af 30 munu fá tækifæri til að taka þátt í lokakeppninni. Þetta hefur orðið til þess að Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur þegar dregið sig úr keppninni og ætlum við í Menntaskólanum á Akureyri að gera slíkt hið sama.

Fyrirkomulag keppninnar í ár er þannig háttað að allir skólar borga þátttökugjald óháð því hvort þeir komist í gegnum niðurskurðinn eða ekki. Þeir skólar sem svo fá tækifæri til að flytja atriði sitt í keppninni þurfa svo að greiða frekara þátttökugjald auk þess að vera skylt að selja 20 miða á keppnina með tilheyrandi ferðakostnaði fyrir skóla, sérstaklega af landsbyggðinni.

Við teljum að þessar breytingar séu ekki til hagsmunabóta, hvorki fyrir keppendur né framhaldsskólanemanda almennt. Við sjáum því ekki hag okkar að þessu sinni í því að taka þátt en fyriráætlanir eru um að halda okkar eigin keppni hér fyrir norðan, ásamt VMA og fleiri skólum sem hyggjast ekki taka þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna. Líkt og Þórduna hvetjum við því aðra skóla, sem og landsmenn alla, að kynna sér málið og fylgja því eftir.

Þess bera að geta að ákvörðunin er tekin í samráði við Tuma.

3 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page